Algengar spurningar
Hvernig panta ég hjá Bakarameistaranum?
Þú getur pantað á bakarameistarinn.is, sent tölvupóst á pantanir@bakarameistarinn.is eða hringt í síma 533 3000.
Í netversluninni greiðir þú með korti. Ef þú pantar með tölvupósti greiðir þú með millifærslu. Við símapöntun getur þú greitt með millifærslu eða korti. Greiða þarf við pöntun nema um reikningsviðskipti sé að ræða.
Fyrirtæki í reikningsviðskiptum þurfa að hafa samband við skrifstofuna á pantanir@bakarameistarinn.is til að leggja inn pöntun á fyrirtækjareikning. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á sama netfang um að koma í reikningsviðskipti.
Er hægt að vera með áskriftarpantanir?
Já, við bjóðum upp á áskriftarpantanir. Hafðu samband við pantanir@bakarameistarinn.is til að ræða fyrirkomulag og óskir.
Hvaða upplýsingar þurfa að fylgja pöntun í tölvupósti?
Vinsamlegast taktu fram:
-
Nafn, símanúmer og kennitölu þess sem pantar.
-
Hvaða vörur þú vilt panta og magn.
-
Afhendingardag og tíma.
-
Hvort þú vilt sækja í Suðurver, Holtagarða eða Flatahraun eða fá pöntunina senda.
-
Heimilisfang ef óskað er eftir heimsendingu.
-
Kennitölu fyrirtækis og viðfangsnúmer, ef við á.
Sendu pöntunina á pantanir@bakarameistarinn.is.
Hvenær er pöntunin mín staðfest?
Greiða þarf við pöntun nema um reikningsviðskipti sé að ræða.
Þegar greiðsla hefur borist sendum við staðfestingu. Ef þú greiðir með millifærslu skaltu senda kvittun á pantanir@bakarameistarinn.is.
Farðu vel yfir staðfestinguna og athugaðu vörur, magn, dagsetningu, afhendingarstað og tíma. Hafðu samband ef eitthvað er rangt.
Hversu mikinn fyrirvara þarf ég til að panta?
Fyrirvarinn kemur fram við hverja vöru þegar pantað er. Fyrir helgar þarf að vera búið að panta fyrir kl. 16:00 á fimmtudögum.
Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband í síma 533 3000 eða á pantanir@bakarameistarinn.is.
Get ég breytt pöntun?
Það fer eftir því hversu stutt er í afhendingu og hvort hægt sé að verða við breytingunni. Hafðu samband við skrifstofuna í síma 533 3000 sem fyrst.
Breytingargjald er 3.000 kr.
Get ég afpantað pöntun?
Hægt er að afpanta með að minnsta kosti fjögurra daga fyrirvara og fá fulla endurgreiðslu. Sé afpantað með skemmri fyrirvara fæst pöntunin ekki endurgreidd.
Afpanta þarf í síma 533 3000.
Hvar og hvenær get ég sótt pöntunina mína?
Þú getur valið að sækja í Suðurver, Holtagarða eða Flatahraun. Afhendingarstaður og tími eru valin þegar pantað er. Hægt er að sækja pantanir á milli kl. 9:00 og 14:00.
Ef þú vilt sækja í aðra verslun skaltu hafa samband við pantanir@bakarameistarinn.is. Það fer eftir umfangi pöntunar hvort hægt sé að verða við þeirri ósk.
Athugið að alla Rice Krispies-turna, kransakökur og kransakökuhorn þarf að sækja í Holtagarða nema þú óskir eftir heimsendingu.
Get ég sótt pöntunina mína snemma?
Já, hægt er að sækja pantanir fyrr en kl. 9:00 eftir samkomulagi. Til dæmis opnar verslunin okkar í Suðurveri kl. 5:30 virka daga og laugardaga.
Hafðu samband við pantanir@bakarameistarinn.is til að semja um afhendingartíma.
Hversu mikið á ég að panta?
Það fer eftir fjölda, tilefni og því hvort boðið er upp á léttar veitingar eða heila máltíð. Á vörusíðum kemur fram fyrir hversu marga tilteknar vörur eru ætlaðar.
Ef þú þarft aðstoð við að áætla magn skaltu senda okkur tölvupóst á pantanir@bakarameistarinn.is með fjölda gesta og upplýsingum um tilefnið og hvaða veitingar þú hefur í huga. Við aðstoðum þig við að velja hæfilegt magn. Við aðstoðum einnig í síma.
Bjóðið þið upp á heimsendingu?
Já, við bjóðum upp á heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu fyrir veisluþjónustu og aðrar pantanir. Heimsending kostar 7.900 kr.
Heimsending er í boði á milli kl. 9:00 og 12:00. Upplýsingar um afhendingartíma koma fram þegar pantað er. Ef þú óskar eftir heimsendingu á öðrum tíma skaltu hafa samband við pantanir@bakarameistarinn.is.
Hversu mikinn fyrirvara þarf fyrir heimsendingu um helgar?
Fyrir heimsendingu um helgar þarf að panta fyrir kl. 16:00 á fimmtudegi. Fyrirvarinn fyrir hverja vöru kemur jafnframt fram þegar pantað er.
Get ég pantað hjá Bakarameistaranum á Wolt?
Já, Bakarameistarinn er einnig á Wolt. Þar getur þú skoðað úrvalið og fengið heimsent. Verð, sendingargjald, afhendingarsvæði og afhendingartími koma fram í Wolt.
Hvenær er skrifstofan opin?
Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 8:00 til 15:00. Lokað er um helgar og á rauðum dögum.
Er tekið við pöntunum um helgar?
Heimasíðan er alltaf opin til að panta. Ekki er tekið við pöntunum í gegnum skrifstofuna um helgar. Vinsamlegast gangið frá pöntunum með tilskildum fyrirvara.
Hvernig get ég greitt fyrir pöntun á vefsíðunni?
Hægt er að greiða með debet- eða kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt á vefsíðunni.
Geta fyrirtæki sett veitingar í reikning?
Já. Fyrirtæki geta sent fyrirspurn um að koma í reikningsviðskipti á pantanir@bakarameistarinn.is.
Eru verð á vefsíðunni með virðisaukaskatti?
Já, öll verð á vefsíðunni eru með virðisaukaskatti.
Hvað gerist ef ekki er hægt að útvega vöru sem ég hef pantað?
Við látum þig vita eins fljótt og auðið er og leggjum til sambærilega vöru eða endurgreiðslu.
Hvað geri ég ef eitthvað er athugavert við pöntunina?
Skoðaðu pöntunina við afhendingu og láttu starfsfólk í verslun strax vita ef vara, skreyting eða texti er rangur eða eitthvað annað er að. Þannig getum við brugðist við og bætt úr.
Hvernig er endurgreiðsla framkvæmd?
Ef greitt var með korti er endurgreitt á sama debet- eða kreditkort og notað var við kaupin.
Hvar finn ég upplýsingar um innihald og ofnæmisvalda?
Upplýsingar um innihald og ofnæmisvalda eru undir hverri vöru á vefsíðunni.
Unnið er með ofnæmisvalda í framleiðslunni og ekki er hægt að útiloka krosssmit. Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við pantanir@bakarameistarinn.is áður en þú pantar.
Hvernig læt ég vita af ofnæmi eða sérfæði þegar ég panta?
Hafðu samband við pantanir@bakarameistarinn.is áður en þú pantar og taktu skýrt fram hvaða hráefni þarf að forðast. Við veitum upplýsingar um mögulega valkosti og innihald þeirra.
Unnið er með ofnæmisvalda í framleiðslunni og ekki er hægt að útiloka krosssmit.
Eruð þið með veganvörur?
Já, við bjóðum meðal annars upp á vegansnittur, vegan-tortillubakka og ýmsar tegundir af brauði og bakkelsi.
Þú getur skoðað upplýsingar um veganúrvalið hér. Fyrir frekari upplýsingar skaltu hafa samband við pantanir@bakarameistarinn.is.
Eruð þið með glútenfríar vörur?
Þrumubrauðið okkar er gert úr glútenfríu hráefni. Unnið er með glúten í framleiðslunni og því er ekki hægt að útiloka krosssmit.
Fyrir nánari upplýsingar skaltu hafa samband við pantanir@bakarameistarinn.is.
Eruð þið með eggjalausar kökur?
Nei, við bjóðum ekki upp á eggjalausar kökur.
Eruð þið með mjólkurlausar kökur?
Nei, við bjóðum ekki upp á mjólkurlausar kökur.
Er hægt að sérsníða nestispakka?
Já, við sérsníðum nestispakka og bjóðum meðal annars upp á vegan og glútenfría nestispakka. Hafðu samband við pantanir@bakarameistarinn.is og segðu okkur frá óskum þínum. Enginn lágmarksfjöldi er fyrir nestispakka.
Unnið er með ofnæmisvalda, þar á meðal glúten, í framleiðslunni og ekki er hægt að útiloka krosssmit.
Hvernig á að geyma veitingarnar eftir afhendingu?
Allt smurbrauð og tertur sem innihalda rjóma og ávexti þarf að geyma í kæli við 0–4 °C.
Skúffukökufleka með mynd á ekki að geyma í kæli þar sem myndin getur þornað. Ef ávextir eru á flekanum er þó nauðsynlegt að geyma hann í kæli.
Kransakökuflöskuskreytingar á að geyma við stofuhita.
Hvernig kem ég á framfæri óskum um texta, mynd eða skreytingu á tertu?
Best er að hafa samband við pantanir@bakarameistarinn.is vegna óska um texta, mynd eða skreytingu á tertu.
Get ég pantað veitingar fyrir fund eða veislu?
Já, við bjóðum meðal annars upp á brauðtertur, kaffisnittur, fundabakka, veislubakka, tertur og kransakökur. Úrval, stærðir og verð má finna undir veisluþjónustu á vefsíðunni.
Get ég pantað nestispakka fyrir hóp eða fyrirtæki?
Já, við bjóðum upp á nestispakka fyrir hópa og fyrirtæki og getum sérsniðið þá að óskum ykkar. Við bjóðum meðal annars upp á vegan og glúteinfría nestispakka.
Sendu upplýsingar um fjölda, dagsetningu og óskir á pantanir@bakarameistarinn.is.
Hvar finn ég staðsetningar og opnunartíma?
Þú finnur staðsetningar og opnunartíma allra verslana okkar hér.
Hvernig hef ég samband?
Hringdu í 533 3000 eða sendu tölvupóst á pantanir@bakarameistarinn.is.
Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 8:00 til 15:00.
Hvaða súpa er í dag?
-
Mánudagur: Kókós-thaisúpa
-
Þriðjudagur: Aspassúpa
-
Miðvikudagur: Sveppasúpa
-
Fimmtudagur: Blómkálssúpa
-
Föstudagur: Mexíkósk tómatsúpa
-
Laugardagur: Aspassúpa
-
Sunnudagur: Sveppasúpa
Engin súpa er á sunnudögum í Glæsibæ.
Súpulistinn er einnig á Facebook-síðu Bakarameistarans og í Highlights á Instagram.


